Þorsteinn Pálsson boðar kaflaskil á þeim vordögum sem nú eru að ganga í garð í nýjum pistli sínum á hringbraut.is. Þjóðin er við það að hefja nýtt tilveruskeið í peningamálum án hafta samkvæmt fyrirheitum ríkisstjórnarinnar. Leyndin um hvernig þessari för verður háttað hefur hinsvegar skapað óvissu og uppnám á vinnumarkaði.
Þorstein segir ríkisstjórnina og Seðlabankann hafa glímt við tvö viðfangsefni. Annað sé fortíðardraugur um hvernig slíta megi þrotabúum gömlu bankanna. Hitt sé að koma fram með skýra stefnu um stjórn peningamála eftir höft. Það sé sú framtíðarsýn sem atvinnulífið og launafólk hefur kallað eftir í full tvö ár.
Þorsteinn segir ríkisstjórnina hafa kosið að sveipa bæði þessi viðfangsefni algjörri leynd. Það sé um sumt skiljanlegt að því er varðar tæknilegar lausnir á fortíðarvandanum. Erfiðara sé hinsvegar að skilja hvers vegna leynd hefur ríkt um hitt eftir hvaða leiðum á að uppfylla loforðið um frjáls viðskipti og stöðugleika með krónu þegar slitabúin eru úr sögunni og höftin horfin.
Um það segir Þorsteinn: „Það er pólitík sem verður að vera upp á yfirborðinu. Ein helsta ástæðan fyrir því uppnámi sem nú er á vinnumarkaðnum á rætur í því að ríkisstjórnin hefur ekki í tvö ár svarað spurningum Alþýðusambandsins og Samtaka atvinnulífsins um framtíðarstefnuna í peningamálum. Með ólíkindum er því að hún skuli hafa verið sveipuð leynd í svo langan tíma.
Eftir stormasaman vetur hefur ríkisstjórnin boðað vorkomu í peningamálum. Vonandi þarf hún ekki, þegar sumarið gengur í garð, að naga sig í handarbökin fyrir að hafa hafnað þeirri áskorun síðasta landsfundar Sjálfstæðisflokksins að skoða aðra kosti í gjaldmiðilsmálum.“