Hafsteinn er látinn: „ljúfur og kærleiksríkur“ - „viljiði hjálpa mér“

Hafsteinn Kjartansson varð bráðkvaddur á Spáni, aðfaranótt síðastliðins fimmtudags. Fjölskyldan hefur óskað eftir stuðningi almennings á þessum erfiðu tímum til að flytja jarðneskar leyfar Hafsteins heim til Íslands. Þetta kemur fram á vef DV.

Elín Arnar vinkona Hafsteins segir: „Þeir sem þekktu Habba vita hversu ljúfur og kærleiksríkur hann var, mikill barnakarl og börn soguðust að honum. Hann var alltaf tilbúin að hjálpa ef þess var óskað.“

Þá segir Elín einnig: „Þess vegna langar mig að hefja söfnun til að létta undir með hans nánustu. Það er mjög kostnaðarsamt að senda hann heim til Íslands og öllu sem útförinni fylgir.“ Hún segir að lokum:

 „Viljiði hjálpa mér að styrkja þau og deila þessum pósti á alla sem þekktu hann. Vinsamlega deilið!“

Reikningsnúmer: 0143-26-11702 - Kennitala: 290567-4759

Í samtali við DV segja aðstandendur að safnist umfram það sem stefnt er að, verði sú upphæð gefin í gott málefni í nafni Hafsteins.