Jónas Kristjánsson ritstjóri skefur ekki af því í nýjum bloggpistli þar sem hann telur deiluna í álverinu í Straumsvík vera teikn um komandi tíma. Og það verða ekki góðir tímar ef marka má greiningu ritstjórans góðkunna.
„Lærdómsrík er framganga Rio Tinto í vinnudeilunni í Straumsvík. Við sjáum, hver staðan verður, þegar risafyrirtækin taka við stjórn heimsins eftir TISA/TTIP samningana í Genf. Þá verður auðvelt að skófla upp staðbundnum fyrirtækjum og setja starfsfólkið í spennitreyju,“ segir Jónas.
Með því vísar hann væntanlega til þess að starfsmenn álversins hafi lúffað fyrir eigendavaldinu en á elleftu stundu í gærkvöld hættu starfsmenn við boðað verkfall á miðnætti – þótt engan veginn sé ljóst að það muni koma í veg fyrir að slökkt verði á álverinu.
Rannveig Rist, forstjóri álversins, hefur sent fjölmiðlum bréf þar sem hún segir álverið ekki sitja við sama borð og aðrir vinnustaðir en Jónas gerir lítið með svoleiðis.
„Eftir yfirtökuna verða greidd sultarlaun til innfluttra þræla hjá vinnuleigum. Hyggist ríkisstjórnir grípa til varna, munu risafyrirtækin láta gerðardóma úrskurða sér hrikalegar skaðabætur fyrir tjón á ráðgerðum arði. Umhverfisvernd og lágmarkslaun verða skaðabótaskyld. Ríkin afla á móti tekna með sölu mannvirkja og þjónustu til einkarekstrar. Jörðin verður skuldafangelsi þræla.“
Starfsmenn fórnuðu rétti sínum
Ómar Ragnarsson fjölmiðla- og baráttumaður hefur einnig skrifað um málið og kemst að svipaðri niðurstöðu og Jónas Kristjánsson:
\"Dagurinn í dag er svartur dagur í sögu verkalýðsbaráttunnar á Íslandi. Lyktir vinnudeilunnar í Straumsvík minnir á nýlendutímana, sem á pappírnum á að vera lokið, en eru það ekki, því að alþjóðleg stórfyrirtæki sjá um það sem nýlenduþjóðirnar gerðu áður; að láta hina innfæddu finna fyrir valdinu. Sigur Rio Tinto er alger: Starfsmenn neyðast til að fórna verkfallsréttinum og því að fá kjarabætur á borð við aðra launþega landsins til þess að verjast því að þeir verði að stórum hluta og í vaxandi mæli reknir og í staðinn teknir verktakar á lægstu launum eftir útboð.\"