Hafnarfjörður í sárum vegna actavis

Rósa Guðbjartsdóttir formaður bæjarráðs Hafnarfjarðar segir það mikið áfall fyrir atvinnulíf sveitarfélagsins að missa jafn stóran vinnustað úr landi og lyfjaverksmiðju Actavis í bænum, en þar starfa 300 manns.

Forkólfar Actavis tilkynntu í gær um flutninginn, sem þeir segja vera í hagræðingarskyni; verksmiðjan í Hafnarfirði sé af óhagkvæmri stærð og komin til ára sinna og arðsamara sé fyrir fyrirtækið að sameina hana einni af verksmiðjum þess úti í löndum, en Actavis rekur nokkrar lyfjaverksmiðjur í Evrópu og raunar víðar um álfur.

Rósa vonast eftir því að einhver önnur öflug starfsemi komi í stað þeirrar sem hverfur úr bænum en leynir þó ekki áhyggjum sínum og leiða fyrir hönd þess stóra hóps sem sér nú fram á að missa vinnu sína í bænum.

Mikill fjöldi þessara starfsmanna er háskólamenntaður og hefur unnið við sérfræðistörf hjá fyrirtækinu.

Þegar flutningur verksmiðjunnar til útlanda verður yfirstaðinn munu um 400 manns vinna hjá Actavis á Íslandi, að mestu við stjórnun og markaðsstarf, en framleiðslan verður öll í útlöndum.