Forvígismenn Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins segja nýja skýrslu greiningarfyrirtækisins Clever Data um taprekstur á starfsemi ÁTVR eiga sér litla stoð í veruleikanum og niðurstöður skýrslunnar í raun vera vangaveltur fremur en staðreyndir.
Grein var frá skýrslu fyrirtækisins á hringbraut.is í morgun, en þar kemur fram að einkasala ríkisins á áfengi hafi ekki skilað hagnaði fyrir ríkissjóð og miklu nær væri fyrir ríkið að gefa söluna frkálsa, en það myndi auka að mun fjárahsgbata ríkisins af sölunni. Þetta segja forráðamenn stofnunarinnar vera fjarstæðu: " ÁTVR hefur aldrei verið rekin með tapi frá því að áfengisgjöld og tóbaksgjöld voru aðskilin frá rekstrartekjum verslunarinnar," segir í tilkynningu sem stofnunin sendi frá sér á hádegi í dag.
Í skýrslu Clever Data er sagt að tóbakssalan niðurgreiði áfengissölunar, en forráðemenn ÁTVR segja það líka rangt: "ÁTVR er lögum samkvæmt rekin sem ein heild, þ.e.a.s. starfsemin að því er lýtur að smásölu áfengis annars vegar og heildsölu tóbaks hins vegar er ekki aðgreind í rekstri fyrirtækisins eða bókhaldi. Ljóst er að aðgreindur rekstur hefði í för með sér verulega óhagkvæmni, enda eru veigamiklir rekstrarliðir sameiginlegir báðum þáttum starfseminnar. Nægir hér til dæmis að nefna húsnæðiskostnað, kostnað við meðhöndlun vöru í vöruhúsi, rekstur tölvukerfa, vöruinnkaup, vörudreifingu og launakostnað. Í bókhaldi ÁTVR er ekki sundurgreint hvernig slíkur kostnaður deilist á milli áfengis- og tóbakshlutans og því eru engin gögn til um kostnaðarskiptingu. Kostnaður vegna vörunotkunar áfengis annars vegar og tóbaks hins vegar er hins vegar aðgreindur í rekstrinum og sundurliðaður í ársreikningi fyrirtækisins," segir í tilkynningunni.