Hafnar fullyrðingum um hindranir

Bláa Lónið vís­ar full­yrðing­um for­ráðamanna Gray Line um sam­keppn­is­hindr­an­ir af hálfu Bláa Lóns­ins al­farið á bug og seg­ir að þvert á móti sé verið að jafna stöðu Gray Line og annarra aðila á ferðaþjón­ustu­markaði sem eru í sam­keppni við Gray Line.

Fyr­ir­tæki á veg­um Bláa Lóns­ins hóf ný­lega rekst­ur á eig­in áætl­un­ar­ferðum til og frá Bláa lón­inu und­ir heit­inu Dest­inati­on Blue Lagoon. Í gær til­kynnti Gray Line um að fimmtán starfs­mönn­um hefði verið sagt upp þar sem ákveðið var að hætta með áætl­un­ar­ferðir í Bláa Lónið.

Nánar á visir.is

https://www.mbl.is/vidskipti/frettir/2018/04/29/hafnar_fullyrdingum_um_hindranir/