Hafna umsóknum um ný hótel

Reykja­vík­ur­borg er far­in að hafna um­sókn­um um ný hót­el og nýj­ar hótel­íbúðir í miðborg­inni. Einnig hafa gisti­leyfi ekki verið end­ur­nýjuð, samkvæmt frétt á mbl.is í dag. 

Þar er haft eftir Hjalta Gylfa­syni, fram­kvæmda­stjóra Mann­verks, að þessi stefnu­breyt­ing hafi þau áhrif að fé­lagið hef­ur end­ur­hugsað tvö fyrirliggjandi hót­el­verk­efni. Áformað er að taka minnst 730 hót­el­her­bergi í notk­un í borg­inni á næsta ári og við það bæt­ast 54 hótel­íbúðir.

Sam­kvæmt heim­ild­um Morg­un­blaðsins hafa bank­arn­ir skrúfað fyr­ir út­lán til hót­el­bygg­inga. Þá á óvissa um stöðu flug­fé­lag­anna þátt í að dregið hef­ur verið úr út­lán­um til ferðaþjón­ustu­verk­efna al­mennt.