„Rafíþróttir eru í rauninni að spila tölvuleiki eða keppa í tölvuleikjum með skipulögðu keppnisfyrirkomulagi. Þá er mikilvægt að þú getir æft íþróttina, æft tölvuleikinn og getir keppt markvisst. Rafíþróttasamtökin standa ekki sjálf fyrir æfingum en það hafa sprottið upp til dæmis Rafíþróttaskólinn og nú er KR komið með lið í keppni og er að setja upp aðstöðu. Það eru komin inn fleiri félög sem eru að setja upp aðstöðu til að vera með æfingar fyrir sín lið. Fylkir stefnir á að taka þátt í þessu líka og fleiri íþróttafélög.“
Þetta segir Hafliði Ólafsson, gjaldkeri og mótastjóri Rafíþróttasamtaka Íslands (RÍSÍ), félagasamtaka sem hafa það að markmiði að kynna rafíþróttir á Íslandi og veita aðstoð við uppbyggingu þeirra hér á landi. Hafliði er gestur Lindu Blöndal í frétta- og umræðuþættinum 21 á Hringbraut í kvöld, þar sem hann ræðir hvað felst í þessari tegund íþrótta.
Aðspurður um hvort allir samþykki að um íþrótt sé að ræða segir hann: „Það eru ákveðnar umræður um það hvort þetta sé íþrótt eða ekki. En fyrir mitt leiti finnst mér það ekki endilega skipta máli hvort við köllum þetta íþrótt eða ekki, svo lengi sem við erum að gera þetta á réttum forsendum. Ef við getum sagt að rafíþróttir séu uppbyggilegar fyrir krakka og að það fylgi þessu félagsstarf og aðrir partar sem fylgja íþróttum, þá er mér alveg sama hvort við köllum þetta íþrótt eða ekki. Ef þetta er gott, þá er þetta gott.“
Hafliði segist hafa orðið var við að æfingar og mót í rafíþróttum hafi aukið félagslíf og minnkað einveru hjá krökkum. „Já, svakalega mikið. Það sem er eitt helsta atriði okkar er að fá þessa krakka sem eru ekki að finna sig í öðru félagslífi, eru að einangrast, til þess að koma og taka þátt í þessu félagsstarfi, af því það er svo gífurlega mikilvægt. Við höfum séð það, til dæmis í Garðalundi, þar sem við byrjuðum með félagastarf fyrir rafíþróttir, fyrir tölvuleiki, þá vorum við að ná til þessara krakka sem höfðu hvergi fundið sig í öðru félagsstarfi.“
Þrátt fyrir þessa jákvæðu þætti sem hann nefnir segir Hafliði að RÍSÍ loki ekki augunum fyrir þeim vandamálum sem geta fylgt tölvuleikjaiðkun. Því standa samtökin til dæmis fyrir fræðslu ýmis konar, bæði fyrir krakka og foreldra þeirra.
Nánar er rætt við Hafliða í 21 í kvöld. Þátturinn hefst klukkan 21:00.