FKA - Félag kvenna í atvinnulífinu heiðraði í dag þrjár athafnakonur í Hörpu. FKA afhenti sínar árlegu viðurkenningar að viðstöddum fjölda þeirra karla og kvenna sem standa í framlínu íslensks viðskipta- og atvinnulífs. Auk Guðrúnar Hafsteindóttur hlutu Dr. Hólmfríður Sveinsdóttir og Hafdís Árnadóttir viðurkenningu.
Frumkvöðull í lífvísindum
Hvatningarviðurkenningu FKA hlaut Dr. Hólmfríður Sveinsdóttir, framkvæmdastjóri Iceprotein ehf og Protis ehf. Hólmfríður lauk meistaranámi frá Justus-Liebig Universität í Giessen í Þýskalandi og doktorsprófi í lífvísindum og næringarfræði frá Háskóla íslands 2009. Hún er fædd og uppalin í Skagafirði og sneri þangað aftur að námi loknu þar sem hún stýrir nú tveimur frumkvöðla fyrirtækjum; rannsóknarfyrirtækinu Iceprotein og Protis íslensku líftæknifyrirtæki sem sérhæfir sig í þróun, framleiðslu og sölu á lífvirku fiskprótíni úr villtum íslenskum þorski.
Hafdís í Kramhúsinu
Þakkarviðurkenningu FKA 2017 hlaut Hafdís Árnadóttir, stofnandi og eigandi Kramhússins. Hafdís er fædd og uppalin á Hjalteyri í Eyjafirði, stundaði nám við íþróttaskólann á Laugarvatni áður en hún hélt utan til Danmerkur þar sem hún lagði stund á dans eða „rytmegymnastik“ í skóla Lis Burmeister. Kramhúsið var stofnað 1984 og vakti strax athygli fyrir fjölbreytt og nýstárleg námskeið.
FKA skipar dómnefnd á hverju ári til að velja þær konur sem hljóta viðurkenningar félagsins hverju sinni.
Í dómnefnd í ár eru: Áshildur Bragadóttir, forstöðumaður Höfuðborgastofu, Grímur Sæmundsen, forstjóri Bláa Lónsins, Herdís Jónsdóttir eigandi og fjármálastjóri Happy Campers , Jakob Sigurðsson, forstjóri VÍS, Jónína Bjartmarz, framkvæmdastjóri Okkar Konur Kína ehf., Liv Bergþórsdóttir, forstjóri NOVA og Jón Diðrik Jónsson, framkvæmdastjóri Senu.
Sjá einnig: Guðrún fær viðurkenningu FKA