Hafa yfirfarið reglur vandlega

Efling hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem brugðist er við athugasemdum Samtaka atvinnulífsins vegna atkvæðagreiðslu um vinnustöðvun starfsfólks í ræstingum á veitinga- og gistihúsum, en samtökin telja atkvæðagreiðsluna ólöglega. Lýst er yfir vonbrigðum með athugasemdir SA og þeim vísað á bug. 

Í frétt SA fyrr í dag var greint frá því að samtökin telji að ólöglega sé staðið að atkvæðagreiðslunni og skora á Eflingu að stöðva hana, ellegar muni samtökin höfða málssókn fyrir Félagsdómi.

Viðar Þorsteinsson framkvæmdastjóri Eflingar segir að það sé fjarri lagi að atkvæðagreiðslan sé ólögleg og telur athugasemdirnar augljóslega til þess ætlaðar að hindra félagsmenn Eflingar í að nýta lýðræðisleg réttindi sín. Hann segir Eflingu vísa athugasemdum SA alfarið á bug og að formaður kjörstjórnar Eflingar hafi þegar svarað SA.

Viðar segir að allur undirbúningur og framkvæmd kosninganna hafi verið í samræmi við viðeigandi reglur. Í yfirlýsingunni kemur fram að þar sé um að ræða lög um stéttarfélög og vinnudeilur nr. 80 frá 1938, lög Eflingar og Reglugerð ASÍ um leynilega allsherjar atkvæðagreiðslu meðal félagsmanna aðildarsamtaka. „Lögmenn okkar og formaður kjörstjórnar hafa að sjálfsögðu yfirfarið þessar reglur mjög vandlega,“ segir Viðar. Hann sagði Eflingu vísa athugasemdum SA alfarið á bug og að formaður kjörstjórnar Eflingar hafi þegar svarað SA.

Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar sagðist harma afskipti SA og einstakra atvinnurekenda af kosningunum. „Það er með ólíkindum að sjá hagsmunaaðila reyna að stöðva þá miklu upprisu verkafólks sem nú er í gangi. Það hefur verið magnað og ótrúlegt að fylgjast með undirtektum Eflingarfélaga. Allir eru ólmir að kjósa og mikill hugur í fólki,“ segir Sólveig Anna, sem varði morgninum í verkfallskosningabíl Eflingar sem ekið hefur milli hótela.