Nú í morgunsárið er pólitíska loftið þungskýjað.
Hringbraut ræddi við heimildarmenn um gang stjórnarmyndunarviðræðnanna. Oddviti VG Katrín Jakobsdóttir segja heimildarmennirnir notar sérhvert tækifæri til að árétta hve mikil einhugur ríkir um að þessar viðræður hennar við oddvita Framsóknarmanna og Sjálfstæðismanna lukkist.
Flokkarnir hafa sem sé eina stefnu. Þá að mynda saman ríkisstjórn. En hvernig hljómar málefnasamningurinn? Um það ríkir þögn. Ekki hefur verið gengið frá skiptingu ráðuneyta. Heimildarmenn Hringbrautar gera lítið úr því og staðhæfa reyndar að ráðherrastólum sé útdeilt með einföldu handsali.
VG sýnast hafa til að bera eðlisþætti stálsins. Eru í orði hið minnsta beittir og sveigjanlegir eins og stálið. Því stjórnin sem VG eru að mynda verður að sögn Katrínar Jakbosdóttur hvorki vinstri - né hægri stjórn. Því er enn eftir að leysa úr ýmsum málum. Með öðrum hætti en gert hefur verið.
Hvað sem sem það nú merkir segja heimildarmenn Hringbrautar.
Svo mörg eru þau orð. Þau þurfa vissulega engrar skýringar. Slík orð getur hver og einn þeirra þriggja borið fram sem stendur að þessum viðræðum.
En fjölmiðlar verða að skyggnast á bak við orðin og minnast þeirra verka sem VG unnu í Jóhönnustjórninni.
Og þeirra verka sem unnin verða ef þessi stjórnamyndun VG lukkast.
Sporin hræða.
Kjósendur verða að varðveita þann veruleika.