Íris Róbertsdóttir, nýr bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, segir að meirihlutaviðræður H-lista og Eyjalistans hafi gengið vel. Sjálfstæðisflokkurinn hafði verið í meirihluta í Eyjum í tólf ár og Íris segir að það þurfi kjark til að breyta hlutunum.
„Andrúmsloftið í viðræðunum var gott. Auðvitað er alltaf eitthvað sem þarf að ræða um en þetta gekk mjög vel,“ segir Íris við mbl.is.
https://www.mbl.is/frettir/innlent/2018/06/01/hafa_tru_a_breytingunum/