María Einisdóttir framkvæmdastjóri geðsviðs Landspítalans segir ekki einasta að útskrifa hafi þurft fólk alltof snemma af völdum verkfalls hjúkrunarfræðinga sem nú stendur yfir heldur hafi gæði þjónustunnar minnkað til muna.
Hún segir við Frétablaðið í morgun að loka hafi þurft tveimur deildum á geðsviðinu vegna vinnustöðvunarinnar sem staðið hefur yfir frá 27. maí. Hún segir að starfsfólk sem enn sé til staðar á geðsviðinu sinni öllu því sem er brátt en hitt þurfi að bíða. það þýði að sjúklingar þurfi í meira mæli en áður að bíða heima. "Þetta er grafalvarlegt mál, " segir hún við blaðið og bendir á að geðsjúkdómar geti verið banvænir.
Hennar sýn á deiluna er þessi: "Ég held að almenningur virði störf hjúkrunarfræðinga en ég held að stjórnmálamenn skorti skilning."