Um ellefu hundruð manns hafa nú heitið á hlaupahópinn Hlaupum fyrir Berglindi og hafa rúmlega sjö milljón krónur safnast en hlaupahópurinn ætlaði að hlaupa í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka fyrir Berglindi Gunnarsdóttur, 27 ára læknanema og landsliðskonu í körfubolta, sem slasaðist alvarlega í rútuslysi fyrr á árinu.
Líkt og Fréttablaðið greindi frá á sínum tíma voru hjúkrunar- og læknanemar við Háskóla Íslands á leið í skíðaferð á Akureyri þann 10. janúar og voru nemendurnir í tveimur rútum. Önnur rútan valt við skammt frá Blönduósi en um 50 læknanemar voru um borð og þurfti að flytja þrjá nemendur með alvarlega áverka með sjúkraflugi til Reykjavíkur.
Ein þeirra sem slasaðist alvarlega var Berglind en hún greindi í byrjun febrúar frá reynslunni á Facebook síðu sinni. „Fyrst eftir slysið gat ég lítið sem ekkert hreyft mig og skynið var brenglað. Mestu máli skipti þó að ég var á lífi, hausinn 100% í lagi og ég er ennþá sama Berglind,“ sagði Berglind í færslunni en hún sagði langt endurhæfingarferli vera fram undan.
Rætt var við Berglindi í sportpakka Stöðvar 2 í gærkvöldi en þar sagði hún að það hafi ekki verið góð tilfinning að finna það að vera lömuð fyrir neðan axlir en hún slasaðist alvarlega á hálsi og mænu við slysið. „Ég leit í rauninni á þetta verkefni eins og hver önnur íþróttameiðsl. Ég ætlaði bara að komast í gegnum þetta og ná sem mestum bata,“ sagði Berglind í viðtalinu en hún sagði hugarfarið hafa skipt miklu máli í gegnum ferlið.
„Staðan er sú að ég nota tvær hækjur oftast þegar ég er úti, er farin að sleppa þeim svolítið heima. Þannig ég get gengið en hraðinn er ekki mikill og úthaldið enn þá minna,“ sagði Berglind enn fremur. „Þetta er samt ekki búið, það er langur vegur framundan.“
Þrátt fyrir að Reykjavíkurmaraþonið fari ekki fram í ár vegna kórónaveiruheimsfaraldursins fer fram sérstakt hlaup í Stykkishólmi sem er heimabær Berglindar. „Reikningur þessi er hugsaður til að létta undir með Berglindi í kostnaðarsömu endurhæfingarferli en einnig til að hjálpa Berglindi að komast aftur út í lífið samhliða áframhaldandi endurhæfingu,“ segir í útskýringu hlaupahópsins á heimasíðu hlaupsins.
Hægt er að heita á hlaupahópinn Hlaupum fyrir Berglindi hér.