Hafa nægar birgðir og bíða átekta

Íslensku Everestfararnir Ingólfur Geir Axelsson og Vilborg Arna Gissurardóttir halda til í fyrstu búðum i hlíðum fjallsins og segjast ætla að bíða átekta, þrátt fyrir dapurlegar aðstæður, en fimm hjálparmenn úr liði þeirra fórust í snjóflóðinu í gærmorgun eins og Vilbiorg staðfesti í færslu á vef sínum í morgun. Ekkert ami þó að þeim og þau hafi nægar birgðir til að halda áfram för sinni.


Hugur Vilborgar er þó vitanlega hjá aðstandendum þeirra sem misstu ætttingja og vini í ofanflóðinu í gær sem reið yfir strax að loknum jarðskjálftanum sem skók Nepal en hann var upp á 7,8 á Richter. Snarpur eftirskjálfti reið yfir svæðið í morgun.


Í færslu Vilborgar segir að veður sé nú gott á svæðinu og hafi það verið notað til að færa göngumenn og hjálparmenn þeirra með þyrlum  niður úr miðjum hlíðum fjallsins til grunnbúða.


Fjallgöngfuteymi Vilborgar bíður nú átekta sem fyrr segir ásamt fimm sherpum í grunnbúðunum, en 12 sherpar hafast að auki við í næstu búðum þar fyrir ofan.