Á sama tíma og 90.000 manns hafa ritað undir mótmæli þar sem ríkisstjórnin er hvött til að verja auknu fé til heilbrigðismála stunda alls konar félög og félagasamtök þrotlaust starf til að kaupa tæki fyrir heilbrigðisstofnanir.
Hollvinasamtök Sjúkrahússins á Akureyri afhentu sl. fimmtudag 10 milljóna króna öndunarvél til spítalans á Akureyri frá Hollvinasamtökunum.
\"Við höfum lagt fram töluvert á annað hundrað milljóna á ríflega tveimur árum í andvirði lækningatækjakaupa en við það má svo bæta 25% sem SAk hefði þurft að borga í vask,\" segir Jóhannes Gunnar Bjarnason, formaður Hollvinasamstakanna.
Alls eru um 2000 manns í Hollvinasamtökunum og segir Jóhannes engum vafa undirorpið að störf félagsins og framlög hafi lyft gæðum spítalans upp um gæðaflokk.
Yfirlæknir gjörgæslu, Oddur Ólafsson, sagði við afhendingu öndunarvélarinnar í vikunni að samtökin \"væru það jákvæðasta sem gerst hefði í bæjarlífinu um áratuga skeið\".