Þann 12. júlí síðasliðinn skýrði Fréttablaðið frá því að búið væri að selja flugrekstrareigni WOW air og að búið væri að greiða fyrir þær. Kom fram að þrotabúið hefði náð bindandi samkomulagi við bandarísku kaupsýslukonuna Michele Ballar um kaup hennar á eignum WOW air og að hún hyggðist endurreisa flugfélagið. Morgunblaðið segir hins vegar frá því í dag að enn eigi eftir að hnýta lausa enda og að enn hafi ekki verið greitt fyrir flugrekstrareignirnar.
Ballar er í einkaviðtali við Morgunblaðið í dag þar sem hún ræðir um fyrirætlanir sínar um endurreisn WOW air. Þar segir hún að í samstarfi við fjárfesta sé búið að tryggja allt að 100 milljónir dollara til rekstursins. Á fyrstu sex starfsmánuðum sé gert ráð fyrir að 25 milljónir dala verði lagðar í fyrirtækið.
„Það er bara eitt sem við viljum tryggja; að það skorti ekki fé,“ segir Ballar.
Ballar kemur einnig inn á þau tækifæri sem hún sér í íslenskri ferðaþjónustu og hvernig endurreist WOW air geti styrkt íslenskt samfélag til frambúðar. Hún segist hafa rætt við áhrifafólk í samfélaginu að undanförnu og við lykilfólk sem kom að rekstri WOW air, þar á meðal við Skúla Mogensen stofnanda og forstjóra WOW air.