Hafa búið alla ævi í reykjanesbæ og hafa upplifað tímana tvenna suður með sjó á uppvaxtarárunum

Sjöfn Þórðar heimsækir Reykjanesbæ heim þar sem íbúafjölgun hefur verið hröð á undanförnum árum og langt yfir landsmeðaltali.  Mikil gróska hefur verið í bænum undanfarin ár og samfélagið laðar til sín ungt fjölskyldufólk og ekki síst fólk úr höfuðborginni.  Byggðin hefur verið að þéttast og margar nýjar glæsilegar fasteignir hafa risið og prýða bæjarstæðið sem er orðið eftirsóknarverður staður að búa á. Sjöfn hittir fasteignasalana og íbúa Reykjanesbæjar, Jóhannes Ellertsson og Júlíus  Steinþórsson og spjallar við þá um þróunina í bæjarfélaginu, lífið fyrr og nú, hvernig lífið í bænum hefur breyst í áranna rás og hvað það gæti verið sem togar helst í fólk sem flytur til Reykjanesbæjar í dag.  „Fasteignaverðið er eitt af því sem heillar unga fólkið, hér getur það fengið einbýlishús í stað íbúðar í blokk á höfuðborgarsvæðinu, en það er ekki allt,“ segja þeir Jóhannes og Júlíus.  Tímarnir hafa breyst, bæjarfélagið og fólkið með.  „Við munum þá tíð þegar herinn var hér og þá var mest spennandi að komast á völlinn og fá alvöru hamborgara.  Þá var ekki mikið úrval af veitingastöðum og einungis einn söluturn, Brautarnesti,“ segja þeir Jóhannes og Júlíus.  Í dag hefur bæjarbragurinn blómstrað, fjölbreytni í veitinga- og kaffihúsaflórunni hefur aldrei verið meiri og menningarlífið í blóma.  Auk þess sem framboðið til heilsueflingar og ástundun íþrótta hefur stóraukist. Skólar og þjónusta fyrir fjölskyldur á saman reitnum sem eykur lífsgæði fjölskyldunnar til muna og gæðastundir fjölskyldunnar verða fleiri.  Meira um þetta í þættinum í kvöld.

Þátturinn Fasteignir & Heimili verður á dagskrá í kvöld klukkan 20.30 og aftur klukkan 22.30 og jafnan ferskur, fjölbreyttur og með persónulegum blæ.