Hættustígi aflétt á suðurlandi

Hættustigi vegna óveðurs á Suðurlandi og í Vestmannaeyjum hefur verið aflétt og er óvissustig í gildi á landinu. Staðan verður endurmetin af Almannavörnum ríkisinns eftir hádegi.

Þá er búið að aflétta óvissustigi vegna hugsanlegrar snjóflóðahættu á Austurlandi og á Mið-Norðurlandi. Í þeim efnum er þó enn óvissustig á sunnan- og vestanverðum Vestfjörðum, en þar er enn mjög hvasst.

Lokanir á vegum á Vestfjörðum verða endurskoðaðar um hádegi þegar hvassviðrinu hefur slotað. Sama á við um Súðavíkurhlíð og Kirkjubólshlíð, leiðina milli Súðavíkur og Ísafjarðar, en hún verður ekki skoðuð með tilliti til opnunar fyrr en birtir til og hægt verður að sjá upp í hlíðar.

Greiðfært er orðið víða suðvestanlands, en þó eru hálkublettir á Sandskeiði og Hellisheiði. Hálkublettir eru líka víða á Vesturlandi og óveður á þeim slóðum. Lokað er um Bröttubrekku.

Á Austurlandi er flughálka á þeim leiðum sem eru á annað borð opnar, nema á Fagradal og Oddskarði, en þar er hálka. Unnið er að opnun á Fjarðarheiði.

Áfram verður víða stormur eða rok framan af degi, en svo lægir svo um munar síðdegis þegar óveðurslægðin fjarlægist landið.