Hættur í borgarstjórn og Eflingu vegna ásakana um kynferðisofbeldi

Daníel Örn Arnarson, varaborgarfulltrúi Sósíalistaflokksins, hefur sagt sig út öllu stjórnmálastarfi og félagslegum störfum í kjölfar ásakana um kynferðisofbeldi.

Hann greinir frá þessu á Facebook-síðu sinni.

Daníel Örn segist einnig draga sig úr framboði til stjórnar Eflingar fyrir hönd Baráttulistans, lista Sólveigar Önnu Jónsdóttur og félaga til formanns og stjórnar í Eflingu.

Hann greinir ekki frá ásökunum í færslu sinni.