Hættur eftir 37 ár í embætti

Stjórnmálaskýrendur telja að vandi stjórnvalda í Zimbabwe sé rétt að byrja. 

Ólíklegt sé að fyrrum forsetahjónum þeim Robert Mugabe og Grace Mugabe muni dvelja langdvölum í kyrrþey á stórbýli sínu og grípa í landbúnaðarstörf.   

Vandamál og agnúar eru fyrir höndum. 

Því Zimbabwe er ein samfelld flækja vandamála sem öll mynduðust í valdatíð Robert Mugabe og Grace Mugabe og koma nú af fullum krafti úr kafinu. 

Landið er umflotið hafsjó óvissu og nýjir stjórnaherrar landsmanna eru fullir yfirgengilegra andstæðna. 

Enginn fær séð hvað úr öllum þessum hrærgraut kann að verða.

En svo sannarlega sem Zimbabwe nútímans endurspegla fortíð landsins þá er framtíð Zimbabwe óljós fyrr en ráðin er framtíð Robert Mugabe og Grace Mugabe en þau eru mesta vandamálið.

Það vandmál verður líkast til ekki leyst í bráð.

[email protected]