,Sumir þeirra halda líka að hann gæti hafa verið drukkinn í viðtölunum.
Nunberg slengdi fram alls konar yfirlýsingum í viðtölunum, þar á meðal um að Donald Trump hefði vitað með viku fyrirvara af umdeildum fundi með Rússum í Trump Tower sumarið 2016, þar skaðlegar upplýsingar um Hillary Clinton hafi átt að vera til umræðu. Hann sagðist líka halda að Carter Page, annar ráðgjafi Trumps hafi verið í ráðbruggi með Rússum. En hann sagði samt fáránlegt að halda að Trump-framboðið hafi verið í einhvers konar samstarfi við Rússa um að hjálpa Trump. Mueller saksóknari virtist þó „hafa eitthvað á Trump,“ hugsanlega í tengslum við viðskipti hans.
Sarah Huckabee Sanders, fréttafulltrúi Hvíta hússins, sagði í svari við spurningum um þetta í gær að þetta væri rangt hjá Nunberg.
Nunberg skaut til baka í enn einu viðtalinu í gærkvöldi og sagði að Sarah Sanders bara „ætti að halda kjafti.“ Í sama viðtali gaf hann líka til kynna að hann myndi hugsanlega skipta um skoðun og mæta þrátt fyrir allt í yfirheyrslur. „En ég ætla ekki að eyða 80 klukkutímum í það að fara yfir tölvupósta.“