Ari Kristinn Jónsson, rektor Háskólans í Reykjavík og Steinunn Gestsdóttir, aðstoðarrektor Háskóla Íslands segja á Þjóðbraut í kvöld að háskólar landsins hafi ekki lengur neina burði til að þróa námið, nú sé eingöngu hægt að halda úti grunnstarfsemi. Hættumerkin séu augljós og hafi verið um langa hríð.
Forsíðuauglýsing frá háskólunum í landinu var birt fyrir helgi. Þar skrifa allir sjö rektorar landins undir áskorun til stjórnmálamanna sem nú bjóða sig fram til Alþingis að láta verkin tala og fjárfesta í háskólunum.
Fjármálaáætlun ríkisins á næstu árum gerir ráð fyrir heildarútgjaldaaukningu til uppbyggingar ýmissa innviða landsins en skilur háskólana eftir, segir m.a. í áskoruninni sem birtist í blöðum sl.fimmtudag.
Þau segja litlu máli breyta að sameina skólana, það myndi ekki breyta heildarútkomunni.