Hættir sem þingflokksmaður

Ásta Guðrún Helgadóttir hættir sem þingflokksmaður Pírata. Hún birti eftirfarandi á facebook síðu sinni í dag:

„Í ljósi ágreinings milli mín og meirihluta þingflokks Pírata varðandi innra skipulag þingflokksins hef ég ákveðið að stíga til hliðar sem þingflokksformaður Pírata. Við vorum með ólíka sýn á hvert þingflokkurinn ætti að stefna og því held ég að það sé farsælast að annar taki við því starfi. Hlakka til að gerast óbreyttur þingmaður á ný, en þá gefst meiri tími til að vinna að þeim málefnum sem eru mér hugleikin.\"

Í viðtali við mbl.is í dag segir Ásta Guðrún að sé ekki um mál­efna­ágrein­ing að ræða held­ur ágrein­ing um skipu­lag flokksstarfsins.