Samkeppniseftirlitið hefur hætt rannsókn á samkeppnishamlandi samráði Samherja, Síldarvinnslunnar og Gjögurs án efnislegrar niðurstöðu vegna anna í öðrum verkefnum, að því fram kemur í frétt á forsíðu Fréttablaðsins í dag.
Þar segir að í apríl 2013 hafi eftirlitið veitt Síldaarvinnslunni leyfi til að kaupa útgerðarfélagið Berg-Hugin, en stærstu eigendur vinnslunnar voru annars vegar Samherji og Gjögur. Í ljósi þessara tengsla hafi Samkeppniseftirlitið afráðið að víkka út rannsókn sína á samruna tveggja fyrst nefndu félaganna og skoða hvort yfirráð Samherja yfir Síldarvinnslunni hefðu haft óeðlileg áhrif á viðskiptin.
Fram kemur í blaðinu að Síldarvinnslan, Samherji og Gjögur eru keppinautar í skilningi samkeppnislaga, en hins vegar hafi þau unnið nokkuð náið saman í útgerð, fiskvinnslu og í sölu afurða á undanliðnum árum. Engu að síður hafi Samkeppniseftirlitið hætt rannsókn sinni á meintu samkeppnishamlandi samráði þessara félaga og má ástæðuna \"rekja til mikilla anna við rannsók samrunamála síðustu misseri, en vegna lögbundinna tímafresta í samrunamálum verði eftirliti ávallt að forgangsraða slíkum málum,\" eins og Páll Gunnar Pálsson, forstjóri eftirlitsins segir í blaðinu í dag.