\"Ef Alþingi væri í Hofi myndi ég kannski endurskoða þessa ákvörðun\", segir Brynhildur Pétursdóttir, þingmaður Bjartrar framtíðar sem mun ekki gefa kost á sér til áframhaldandi setu á þingi í næstu kosningum. Hún segir aðalástæðuna ekki vera áhrifaleysi á þingi heldur að hún vilji vera á heimaslóðum fyrir norðan. \"Ég er mjög mikið að heiman og vil hreinlega bara fara heim\"; segir hún brosandi í viðtali á Hringbraut. Hún játar að tilfinningin um áhrifaleysi sé til staðar hjá minnihlutaþingmönnum og þingmönnum í flokki með lítið fylgi, eins og Björt framtíð býr við. Það sé hins vegar ekki aðalástæða þess að hún hættir.
Vill heim til akureyrar
Fleiri fréttir
Nýjast