Í dag, föstudag 13. október er Bleiki dagurinn og er það sýnilegt á margvíslegan hátt í samfélaginu.
Líkt og undanfarin 10 ár tileinkar Krabbameinsfélag Íslands októbermánuð baráttu gegn krabbameini hjá konum. Söfnunarfé Bleiku slaufunnar í ár rennur til Ráðgjafarþjónustu félagsins til að efla stuðning, fræðslu og ráðgjöf til einstaklinga um allt land sem greinast með krabbamein og aðstandenda þeirra.
Hildur Baldursdóttir og eiginmaður hennar Einar Kárason, rithöfundur mættu á Þjóðbraut til Lindu Blöndal í gær.
Hildur greindist í mars 2013 með þriðja stigs krabbamein.Við tók lyfjameðferð í sex mánuði. Síðan var skorið og brjóst og eitlar fjarlægðir. Að lokum tóku við 25 geislameðferðir.
Hildur var að undirbúa útförina sína þegar henni var boðið af Krabbameinsfélaginu í fluguveiðiferð - eitthvað sem hún kunni ekkert á. Í miðri á þegar hún var að æfa köstin fór hún að hugsa um tiltekin sálm fyrir útförina. Á því andartaki rann upp ljós fyrir Hildi að hún væri enn á lífi og það skipti öllu máli. Í staðinn tók hún við að undirbúa sextugsafmælið sitt.