Hættan á erfðablöndun

Sveitarstjórnir Fjarðabyggðar og Djúpavogshrepps vilja fara yfir efnisleg rök sem standa til jafn umfangsmikillar skerðingar á fiskeldi og lagt er til í niðurstöðum áhættumats Hafró.

Vegna hættu á erfðablöndun leggur Hafró til að laxeldi í sjókvíum verði ekki aukið í Berufirði og legst Hafró gegn eldi í Stöðvarfirði vegna nálægðra við Breiðdalsá sem er ein af gjöfulustu laxveiðiám landsins.

Hafró telur hæfilegt að leyfa umtalsverða framleiðslu á frjóum eldislaxi í sjókvíum hér við land.

Ásættanlegt sé að að leyfa allt að sjötíu og eitt þúsund tonna framleiðslu á ári.

Þar af fimmtíu þúsund tonn á Vestfjörðum og tuttug og eitt þúsund tonn á Austfjörðum.

Sveitarstjórnir eystra leggja áherslu á að stjórnvöld skjóti á fresta allri ákvarðanatöku sem byggir með einhverju móti á áhættumati Hafró þar til ljóst er að allar forsendur matsins séu réttar.

 

 

Nánar www.fiskifrettir. www.hafogvatn.is

[email protected]