Verkfallsþungi aðgerða Bandalags háskólamanna eykst að miklum mun á morgun þegar félagsmenn fjögurra aðildarfélaga þess leggja niður vinnu, þar á meðal dýralæknar hringinn í kringum landið. Það hefur í för með sér lömun á starfsemi sláturhúsa - og enda þótt einhverjar undanþágur muni fást til að slátra dýrum er hætt við því að kjötskorts fari að gæta mjög fljótlega.
Verkföll BHM munu hafa veruleg áhrif á íslenska matvælaframleiðslu, ekki einvörðungu á innanlandsmarkaði heldur ekki síður í útflutningi. Þannig verður starfsemi fiskeldisstöðva í lágmarki af völdum vinnustöðvunar dýralækna, en slátrun eldisfisks fellur niður á meðan á verkfallinu stendur, en hún krefst vottunar dýralæknir.
Áhrifa verkfalls BHM á matvælagreinar gætir einnig í innflutningi matvæla, en starfsfólks Matvælastofnunar sem er innan BHM og vottar alla jafna þau matvæli sem eru flutt inn til landsins og geta borið með sér sjúkdóma, leggur einnig niður störf á morgun.