Hætta á hryðjuverki á kastrup

Flugstöð 3 á Kastrup-flugvelli hefur verið rýmd.

Fram kemur á Jyllandsposten að grunsamleg taska hafi fundist og grunur leiki á tilraun til hryðjuverks.

Ríkisútvarpið segir að flugvél Icelandair hafi komið til flugvallarins áðan um svipað leyti og flugstöðin var rýmd og hafi farþegar ekki fengið að sækja töskurnar sínar.

Fram kemur á erlendum vefsíðum að mikil taugaspenna sé á Kastrup en beðið er nánari frétta.