Hætt við starfsmannapartí hjá arion banka - „maður heyrði strax raddir um að fólk væri ekki í stuði fyrir þetta“

Arion banki hefur hætt við Októberfest hátíð sem halda átti fyrir starfsmenn bankans. Hátíðin átti að vera haldinn á morgun. Yfir 100 starfsmönnum sagt upp störfum hjá bankanum í dag. Í samtali við Vísi segir einn af skipuleggjendum veislunnar að strax hafi orðið ljóst að starfsfólk væri ekki í neinu sérstöku skapi fyrir hátíðahöld.

Sigurgeir Sigurpálsson, meðlimur í skemmtinefnd Skjaldar, starfsmannafélags Arion banka, segir að eftir að fregnir bárust af uppsögnunum, að það hefði ekki verið neitt vit í því að halda veislunni til streitu í því andrúmslofti sem nú ríkir á vinnustaðnum. Að sögn Sigurgeirs var búið að skipuleggja þennan viðburð fyrir löngu og að sjálfsögðu hefði ekki verið vitað á þeim tíma að uppsagnir á yfir 100 manns myndu eiga sér stað daginn fyrir skemmtanahöldin.

„Það byrjaði fljótlega umræða um að það væri Októberfest á morgun og maður heyrði strax raddir um að fólk væri ekki í stuði fyrir þetta,“ segir Sigurgeir.