Hætt hefur verið við valfáfangann „Rúnk og réttindi“ sem til stóð að kenna nemendum í 8. til 10. bekk í vetur. Heiðar, kennari áfangans, greinir frá þessu á Twitter og er hann svekktur.
Áfangalýsingin er eftirfarandi:
„Nemendur leggja inn óskir um áhersluatriði sem tengjast líkömum, kynjunum, kynfærunum, kynlífinu, samskiptum kynjanna og allt sem hægt er að tengja þar við. Áherslan er blanda af fróðleik og hugarfari, fordómum og sjálfsvirðingu. Markmiðið að námskeiðinu loknu er að nemendur njóti sín, muni njóta kynlífs, komi fram við aðra af virðingu og verði vinum og vinkonum hvatning til að gera slíkt hið sama.“
Cancelled 😭 Kominn með stundaskrá fyrir kennslu vetrarins og kynfræðsluvalgrein á Akureyri verður ekki kennd. Tek það á mig, var eitthvað að reyna að þróa kynfræðslu sem mér fannst vera ákall eftir en seldi þetta ekki rétt 😔 pic.twitter.com/L0p1qL9oSk
— Heiðar í Rúnk og réttindi (@OgRunk) August 13, 2021
Heiðar segir sjálfur í lýsingu á sér á Twitter að hann sé fertugur grunnskólakennari. „Ég var karlremba fram yfir þrítugt en er feministi í dag. Ég tók forréttindum mínum sem eiturlyfjalaus cis kk úr einföldu fjölskyldumynsyri sem gefnum. Ég skildi ekki tuð feministanna, taldi það vera lúxus að vera kona í dag,“ segir hann.
„Þetta breyttist allt árið 2016 þegar ég kynnist ungum stúlkum sem höfðu lifað aðra æfi en ég. Hver átti sína ólíku fortíðina og engin þeirra hafði upplifað barnæsku í líkingu við forréttindaæsku mína. Ég fékk að vita hvað vímuefni gera fólki og hvað fullorðnir gera ungu fólki.“
Hann segir þörf á þessum áfanga:
„Að hafa þetta í mýflugumynd og háð duttlungum einstaka kennara er óþolandi. Það þarf að dúndra þessu inn í almenna kennslu asap.“