Uggur er í brjósti háskólanema vegna mikillar húsnæðiseklu á höfuðborgarsvæðinu, en leigukostnaður er að sliga þá svo mjög að hætt er við að stúdentum fækki á næstu árum.
Þetta sagði Ragna Sigurðardóttir, formaður Stúdentaráðs Háskóla Íslands í Morgunútvarpi Rásar 2 í morgun og taldi afar brýnt að hækka framfærslu þeirra og frítekjumarkið af því stúdentar lifi einfaldlega ekki af þeim tekjum sem þeir hafa í dag.
Námsmenn fá 177 þúsund krónur á mánuði í gegnum Lánasjóð íslenskra námsmanna sem er 50 þúsund krónum lægra en grunn atvinnuleysisbætur og vel ríflega 100 þúsund krónum lægra en lágmarkslaun í landinu.
Hún sagði við RÚV að í raun og sann væri það pólitískt val að koma svona fram við námsmenn: \"Það hefur ekkert gerst í þessum málaflokki undanfarin ár hvað varðar úthlutunarreglur og framfærsluna\" sagði Ragna og bætti við: \"Ég hef áhyggjur af því að námsmönnum sé að fækka og ég hef áhyggjur af því að námsmenn hafi ekki efni á því að fara í háskólanám.\"