Hætt við að fjöldi heiða lokist í dag

Vegagerðin hefur lokað vegunum um Hellisheiði, Kjalarnes og Lyngdalsheiði og þá er þjóðvegurinn lokaður frá Hvolsvelli að Jökulsárlóni vegna hálku og mjög snarpra vindhviða sem geta hæglega slegið í 50 m/s í dag.
 
Á Kjalarnesi er skafrenningur og blint. Skólahald fellur niður af þessum sökum í Klébergsskóla á Kjalarnesi. Veðrið er ekki skollið á Hellisheiðinni enn þá en Vegagerðin telur mikilvægt að loka henni áður en það gerist til að bílar sem annars færu af stað upp lendi ekki í vandræðum þegar veðrið gengur yfir innan tíðar.
 

Á vef Vegagerðarinnar segir að miklar líkur séu að loka þurfi fleiri vegum vegna óveðurs í dag. Þar er talað um Vestfirði, Mosfellsheiði, Snæfellsnes, uppsveitir Árnessýslu og Austurland um eða upp úr klukkan 9 og Norðurland um eða upp úr 11.