Slagurinn fyrir komandi borgarstjórnarkosningar á vori komanda gæti hæglega snúist upp í einvígi milli turnanna tveggja, Dags B. Eggertssonar, borgarstjóra og Eyþórs Arnalds, leiðtoga Sjálfstæðisflokksins.
Ef svo fer, er hætt við að oddvitar annarra flokka týnist í baráttunni og nái ekki vopnum sínum í öllu skakinu frá hinum tveimur sem munu þá augljóslega verða tveir helstu valkostirnir fyrir kjósendur í borginni.
Þetta er á meðal pælinganna í fyrri hluta Ritstjóranna á Hringbraut í kvöld en þar settust á rökstólana með Sigmundi Erni þeir Stefán Einar Stefánsson, aðstoðarfréttastjóri ViðskiptaMoggans og Trausti Hafliðason, ritstjóri Viðskiptablaðsins. Þeir voru sammála um að hitamálin í kosningabaráttunni verði samgöngur og húsnæðismál, auk þess sem rekstur borgarinnar verði þar áberandi - og leiðir til aðhalds, sparnaðar og niðurgreiðslu skulda.
Talið berst líka að óróanum í verkalýðshreyfingunni og hvort formaður VR sé að gera þar allt vitlaust, stöðu Sigríðar Á. Andersen sem á erfitt með að hrista af sér Landsréttarmálið - og loks stöðu fjölmiðla, en sessunautarnir eru vantrúaðir á því að nokkurt verði aðhafst til að jafna hlut ríkisrekna miðilsins og einkamiðlanna á næstu misserum.
Ritstjórarnir eru frumsýndir öll þriðjudagskvöld klukkan 21:00, en endursýndir í dag og verða svo aðgengilegir á vefnum hringbraut.is undir flipanum sjónvarp.