Hæstu launin á íslandi

Læknar og hjúkrinarfæðingar á Íslandi eru með hærri laun en kollegar þeirra annars staðar á Norðurlöndum. SA-Samtök atvinnulífsins segja frá þessu en SA unnu greiningu á launum íslenskra hjúkrunarfræðinga og lækna fyrir Morgunblaðið. Íslenskir hjúkrunarfæðingar eru með 25% hærri regluleg laun - sem eru laun án yfirvinnugreiðslna - en kollegar þeirra á Norðurlöndum. Íslenskir læknar eru með 30% hærri regluleg laun. Þá eru hjúkrunarfræðingar með 50% hærri regluleg heildarlaun. Það er yfirvinnugreiðslur meðtaldar í samnaburði við regluleg laun kollega á Norðurlöndum. Og læknar með 70% hærri heildarlaun.

Þessar upplýsingar sem SA byggja niðurstöður sínar á eru grundvallaðar á upplýsingum frá hagstofum Norðurlanda um laun hjúkrunarfræðinga og lækna árið 2016. Regluleg laun eru öll laun sem greidd eru fyrir vinnu að frádregnum greiðslum fyrir yfirvinnu. Þannig að í reglegum launum eru alls konar bónusar og vaktaálag og aðrar greiðslur sem fylgja dagvinnu. Ákvæði í kjarasamningum á Íslandi stuðla að miklum yfirvinnugreiðslum.

rtá 

 Nánar www.sa.is www.mbl.is