Hæstiréttur hefur vísað frá kröfu Vilhjálms H. Vilhjálmssonar lögmanns um að Arnfríður Einarsdóttir landsréttardómari víki sæti vegna vanhæfis í sakamáli sem nú er rekið fyrir Landsrétti.
Samkvæmt frétt RÚV segir Hæstiréttur ekki hafa verið færð rök fyrir því að Arnfríður sé vanhæf til að dæma í málinu og þess vegna þurfi að vísa því frá.
Niðurstaðan skiptir máli í deilunum um setu Sigríðar Á. Andersen í embætti dómsmálaráðherra eftir umdeildar skipanir hennar í Landsrétt, því Arnfríður er ein fjögurra dómara sem Sigríður skipaði. Gagnrýnendur hennar töldu réttaróvissu skapast um Landsrétt vegna afskipta ráðherrans og dómarar sem hún skipaði myndu teljast vanhæfir.
Áður hafði Landsréttur einnig komist að þeirri niðurstöðu að Arnfríður væri ekki vanhæf.