Mál Freyju Haraldsdóttur, fyrrverandi varaþingmanns, var tekið fyrir klukkan níu í morgun. Freyja höfðaði mál gegn Barnaverndarstofu og staðfesti hæstaréttadómurinn í morgun dóm Landsréttar sem dæmdi Freyju í vil og ógilti þar með ákvörðun Barnaverndarstofu um að synja umsókn hennar um að taka að sér fósturbarn án þess að leyfa henni að fara í gegnum hefðbundið umsóknarferli.
Rúv greindi fyrst frá dómnum en í samtali við fréttastofu Vísis segist Freyja vera í skýjunum með niðurstöðuna.
„Þetta er niðurstaðan sem við erum búin að bíða eftir lengi og hún er mikilvæg fyrir fatlað fólk almennt, sérstaklega þegar kemur að réttinum til réttlátrar málsmeðferðar,“ sagði Freyja sem mun nú fara á námskeið hjá Barnaverndarstofu sem ætlað er fólki sem hefur sótt um að gerast fósturforeldrar.
„Þá heldur þetta eðlilega ferli, sem hefði átt að halda áfram fyrir fjórum árum síðan, áfram núna,“ sagði Freyja.
Freyja er bjartsýn og bindur vonir um það að hún fái að verða fósturforeldri fyrr en síðar.
„Það er kannski erfitt að segja hvað það taki langan tíma og er misjafnt í tilviki allra en fyrsta skrefið er að fara á námskeiðið og fá endanlegt mat. En ég bind vonir við að það verði fyrr en síðar,“ sagði Freyja.