Hæsta viðbúnaðarstig í brussel

Yfirvöld í Belgíu segja að árásir svipaðar þeim sem voru gerðar í París séu áformaðar í Brussel. Fólki er ráðlagt að forðast fjölfarna staði og jarðlestarkerfinu hefur verið lokað. Íslendingur búsettur í Brussel segir talsverðan ugg í borginni og fáir séu þar á ferli vegna viðbúnaðarins.
 

Þetta kemur fram í samantekt á fréttavef RÚV í dag þar sem segir að belgísk stjórnvöld hafi ákveðið seint í gærkvöld að lýsa yfir hæsta viðbúnaðarstigi í höfuðborginni vegna bráðrar og yfirvofandi hættu á hryðjuverkum. Jarðlestakerfi borgarinnar verði lokað að minnsta kosti þar til síðdegis á morgun, fjölsóttum samkomum hafi verið aflýst og borgarbúum sé ráðlagt að forðast fjölfarna staði á borð við verslanakjarna og menningarmiðstöðvar.

Meðal viðburða sem falla niður um helgina eru tónleikar íslensku sveitarinnar Agent Fresco í borginni.

Friðrik Jónsson, sem starfar í íslensku utanríkisþjónustunni og býr í útjaðri borgarinnar sagði í samtali við fréttastofu RÚV í dag að fáir væru á ferli, flestir héldu sig heima við. Ljóst væri að ummæli belgíska forsætisráðherrans í morgun um að „Parísarleg“ árás væri í undirbúningi hefði valdið borgarbúum talsverðum ótta: \"Það hlýtur nú að setja hroll að öllum við slík tíðindi.“

Í morgun boðaði Charles Michel forsætisráðherra til fréttamannafundar þar sem hann útskýrði betur ákvörðun stjórnvalda að grípa til svo mikils viðbúnaðar, að því er fram kemur í frétt RÚV. Hann sagði að áreiðanlegar vísbendingar hefðu borist um að hópur fólks hefði áformað að fremja hryðjuverkárásir víðs vegar um höfuðborgina með skotvopnum og sprengiefnum, svipaðar þeim og framdar voru í París fyrir rétt rúmri viku.

130 létu lífið í hermdarverkunum í París, nokkrir tilræðismannanna voru búsettir í Brussel, þar á meðal meintur höfuðpaur Salah Abdulsalam. Hann leikur enn lausum hala og eru líkur taldar á að hann sé í felum í belgísku höfuðborginni. Þar eru margar alþjóðastofnanir, til dæmis höfuðstöðvar Atlantshafsbandalagsins og Evrópusambandsins.