16 handteknir í belgíu í gærkvöld

Hæsta viðbúnaðarstig verður enn í gildi í Brussel, þriðja daginn í röð, vegna yfirvofandi hryðjuverkaárása. Ástandið verður endurmetið síðar í dag. Jarðlestarstöðvar verða áfram lokaðar og fólki er ráðið frá því að safnast saman. Þá eru skólar lokaðir.
 
16 voru handteknir í viðamiklum lögregluaðgerðum í belgísku borgunum Brussel, Charleroi og Liege í gærkvöld. Ekki tókst þó að hafa hendur í hári Saleh Abdeslam, sem fullvíst er talið að hafi átt þátt í hryðjuverkunum í París um síðustu helgi. Fullyrt er í nokkrum belgískum vefmiðlum að hann hafi komist undan á flótta.
 

Aðgerðir lögreglu hófust um klukkan sjö í gærkvöld að staðartíma og stóðu fram á tólfta tímann. Hermenn tóku einnig þátt í aðgerðunum, sem þó lutu stjórn lögregluyfirvalda. Gestum á tveimur stórum hótelum í miðborg Brussel var eindregið ráðlagt að halda halda sig á herbergjum sínum en engum var þó varnað útgöngu. Fjölda gatna í nágrenni Grote Markt, miðborgartorgsins fjölfarna, var lokað fyrir allri bílaumferð og veitingamenn beðnir að loka veitingastöðum sínum.

Eyðilegt var um að litast á götum Brussel um helgina að sögn belgíska sjónvarpsins.