Hópur hænsna á Akureyri er á ferð og flugi þessa dagana en nýverið var sú nýjung tekin upp að ala hænur á dvalarheimili aldraðra, Hlíð. Hænsnahópur hefur í sumar verið á Hlíð og að sögn forráðamanna hafa hænurnar glatt bæði íbúa og gesti. Í dag fóru hænurnar til vetrardvalar við einn af grunnsólum bæjarins, Giljaskóla. Sérstök móttökunefnd nemenda sótti hænurnar á Hlíð en hænurnar munu dvelja vetrarlangt í Giljaskóla en koma svo aftur til gamla fólksins á Hlíð næsta vor.
Nemendur Giljaskóla, ásamt smíðakennara, eiga heiðurinn af „hænsnahöllinni“ við skólann og virtust hænurnar mjög sáttar þegar þeim var sleppt í Giljaskóla í morgun. Nemendur skólans tóku vel á móti þeim og starfsfólk Hlíðar efar ekki um að vel verði hugsað um þær í vetur eftir þvi sem fram kemur í frétt á akureyri.is.