Hælisleitendur hér á landi sækja í mjög auknum mæli í svarta atvinnustarfsemi, einkum og sér í lagi á veitingahúsum á höfuðborgarsvæðinu og á Suðurnesjum. Þannig geta þeir ekki einasta drepið tímann, heldur og bætt mjög takmörkum fjárráð sín.
Hringbraut hefur áreiðanlegar heimildir fyrir því að eigendur og rekstraraðilar öldur- og veitingahúsa á umræddu svæði sæki mjög í það ódýra vinnuafl sem hælisleitendur eru og að þeir síðarnefndu hafi svarað eftirspurninni með því að ráða sig í mjög auknum mæli í ýmis störf við uppvask og frágang á þessum stöðum.
Það kemur kannski ekki á óvart að hælisleitendur vilji taka til hendinni gegn þóknun því fjárráð þeirra hér á landi eru mjög takmörkuð. Hver og einn þeirra fær átta þúsund krónur á viku til kaupa á matvöru með sérstöku matvörukorti, eða rúmar þúsund krónur á dag, en þess utan fá þeir 2700 krónur í dagpeninga í hverri viku. Það gerir samtals 11,700 krónur á viku, eða innan við 50 þúsund krónur á mánuði.
Þeir fá ókeypis húsaskjól sem Reykjanesbær útvegar þeim á grundvelli samnings við innanríkisráðuneytið sem nemur 7500 krónum á sólarhring fyrir hvern hælisleitenda.
Hælisleitendur hér á landi eru frjálsir ferða sinna og þurfa ekki að vera komnir inn á dvalarstað sinn á ákveðnum tíma, ellegar tilkynna um ferðir sínar. Þeir geta því gengið til hvaða starfa sem þeir kjósa, hvenær sem er sólarhringsins.
Algengt er að hælisleitendur hér á landi dvelji í um ár á meðan á málsferð þeirra stendur.
Myndin sem fylgir þessari frétt er frá mótmælastöðu hælisleitenda við innanríkisráðhneytið þar sem krafist var skjótari meðferðar hins opinbera á hælisumsóknum þeirra - og tengist að öðru leyti ekki efni fréttarinnar.