Mikil og hörð skoðanaskipti hafa orðið eftir atvikið í Laugarneskirkju í liðinni viku þegar kirkjan ákvað að reyna á kirkjugrið og hýsa tvo hælisleitendur frá Írak og mun Hringbraut fjalla áfram um málið í dag. Stundin sagði fyrst frá og var fullyrt að annar mannanna væri barn, eða undir 18 ára aldri. Útlendingastofnun sagði aftur á móti að hann væri eldri sen svo. Í dag birtir Stundin vegabréf mannsins, Ali Nazir sem sagt er hafa verið í fórum foreldra hans ytra og þar kemur fram að hann er aðeins 16 ára gamall.
Helga Magnúsi Gunnarssyni vararíkissaksóknara var misboðið vegna aðgerða kirkjunna og var harðorður í garð hennar. Hann vill að prestar Laugarneskirkju verði áminntir. Hann spyr m.a. í facebook færslu: „Hvaða dómsdags bull er þetta. Eigum við von á að kirkjan fari að boða annan ófögnuð sem fylgi henni á miðöldum eins og galdrabrennur og drekkingar kvenna sem eiga börn utan hjónabands? Einnig hafa gagnrýnt prestana harðlega eru þingmenn Sjálfstæðisflokksins, þeir Ásmundur Friðriksson og Brynjar Níelsson. Bjarni Randver Sigurvinsson trúarbragðafræðingur kemur á Hringbraut í dag en hann spyr í grein í Morgunblaðinu í dag hvort að ákvarðanir stjórnvalda séu hafnar yfir gagnrýni og bendir á að galdrabrennur og annar ófögnuður fyrri alda hafi ekki síður verið á ábyrgð veraldlegra yfirvalda.