Hælisleitandi hótaði að kveikja í sér

Hælisleitandi frá Íran hellti yfir sig eldfimum vökva fyrir utan hús Rauða krossins í hádeginu og hótaði að kveikja í sér. Sérsveit lögreglunnar og slökkvilið náði að hindra það og yfirbugaði manninn. Hann hafði fengið synjun um umsókn um dvalarleyfi.
 

Ráðist var á manninn með slökkvitæki úr fjarska og í sömu andrá yfirbugaði lögregla manninn, að því er fram kemur á fréttavef RÚV. Þar segir að áður en maðurinn hafi verið yfirbugaður hafi starfsmaður Rauða krossins og sérsveit lögreglu rætt við manninn, sem var rólegur þar sem hann sat á túninu fyrir framan hús Rauða krossins.

Fréttastofa RÚV ræddi við Jóhann Karl Þórisson, aðstoðaryfirlögregluþjón, skömmu eftir að tekist hafði að yfirbuga manninn.  Hann sagði að maðurinn hefði verið hér á landi í rúmt hálft ár.

Hann hefði hellt yfir sig grillvökva og hótað að kveikja í sér. Jóhann segir að um leið og maðurinn sýndi einhverja tilburði hefðu lögreglumenn sýnt snar handtök og yfirbugað manninn með slökkvitækjum. Manninum verður nú komið undir læknishendur.