Ræðum við Stefaníu Óskarsdóttir stjórnmálafræðing er um stefnuræðu Donalds Trumps í gær eftir 40 daga í embætti. Ræðan var flutt fyrir báðum deildum þingsins - og ýmsir gestir sem forsetinn valdi fengu að mæta.
Stefanía sem bjó um árabil í Bandaríkjunum og er menntuð þaðan, segir að ummælið helstu fjölmiðla hafi verið jákvæð. Trump hafi haldið ræðu sem hann hefði átt að halda strax þegar hann tók við, segja sumir gagnrýnendur.
Spilum brot úr ræðunni og sjáum einnig upptöku með Bernie Sanders, fyrrverandi kandídat í forsetaframboði þar sem hann bendir á það sem vantaði í ræðuna og margt annað.