Undanfarin ár hafa framlög til háskólastigsins verið aukin töluvert og samkvæmt frumvarpi til fjárlaga 2020 er ráðgert að þau nemi rúmum 40 milljörðum kr. á næsta ári. Meginmarkmið stjórnvalda er að íslenskir háskólar og alþjóðlega samkeppnishæfar rannsóknastofnanir skapi þekkingu, miðli henni og undirbúi nemendur til virkrar þátttöku í þekkingarsamfélagi nútímans og til verðmætasköpunar sem byggist á hugviti, nýsköpun og rannsóknum. Að því markmiði er meðal annars unnið að með því að auka gæði náms og námsumhverfis í íslenskum háskólum, styrkja rannsóknastarf og umgjörð þess, og auka áhrif og tengsl háskóla og rannsóknastofnana. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Menntamálaráðuneytinu. Þar segir enn fremur.
Fjölgum kennurum
Meðal áhersluverkefna á málefnasviði háskólastigsins eru aðgerðir sem miða að fjölgun kennara. Í frumvarpi til fjárlaga ársins 2020 er gert ráð fyrir 220 milljónum kr. til verkefnisins en meðal aðgerða sem að því miða eru námsstyrkir til kennaranema á lokaári meistaranáms til kennsluréttinda á leik- og grunnskólastigi.
Stuðningur við námsmenn
Í undirbúningi er nýtt stuðningskerfi fyrir námsmenn sem felur í sér gagnsærri og jafnari styrki til námsmanna. Námsaðstoðin sem sjóðurinn mun veita verður áfram í formi lána á hagstæðum kjörum og til viðbótar verða beinir styrkir vegna framfærslu barna og 30% niðurfelling á hluta af námslánum við lok prófgráðu innan skilgreinds tíma. Kerfið miðar að því að bæta fjárhagsstöðu háskólanema, ekki síst þeirra sem hafa börn á framfæri, og skapa hvata til að nemar klári nám sitt á tilsettum tíma. Mennta- og menningarmálaráðherra mun leggja fram frumvarp þessa efnis á haustþingi.
Gæði í háskólastarfi
Unnið er að heildstæðri menntastefnu Íslands til ársins 2030, þvert á skólastig. Á sviði háskóla stendur yfir endurskoðun á reglum um fjárveitingar til þeirra með það að markmiði að styðja betur við gæði í háskólastarfi. Þá er einnig unnið að gerð stefnu um starfsemi rannsókna-, fræða- og þekkingarsetra og ráðgert að birta og hefja innleiðingu á stefnu Íslands um opinn aðgang að rannsóknaniðurstöðum og rannsóknagögnum. Hækkun verður á framlögum til vísinda- og rannsóknasamstarfs samkvæmt frumvarpi til fjárlaga 2020, alls um 18%.
Alþjóðlegt samstarf
Ísland og Japan munu á árinu 2020 halda sameiginlega alþjóðlegan ráðherrafund um vísindi norðurslóða. Fundurinn fer fram í Tókýó í nóvember og verður það þriðji fundur sinnar tegundar. Brýn þörf er á öflugu alþjóðlegu samstarfi um rannsóknir á norðurslóðum og mun þar gefast kjörið tækifæri fyrir Íslendinga til þess að miðla sínum áherslumálum og stefnu til alþjóðasamfélagsins.