Hækkun sjávar mun meiri en haldið var

Hækkun yfirborðs sjávar vegna hlýnunar og þenslu hans er vanmetið að sögn þýskra vísindamanna. Þeir segja að hækkunin verði jafnvel tvöföld á við það sem áður var talið.
 
Þetta kemur fram í umfjöllun á ruv.is um málið í morgun , en þar segir að niðurstöður Þjóðverjanna gefi að líta í bandaríska vísindaritinu Proceedings of the National Academy of Sciences. Samkvæmt þeim stafi hækkun yfirborðs sjávar einkum af tvennu, bráðnun jökla og þenslu vatns við aukinn hita.
 
Þar til nýverið töldu vísindamenn að yfirborðshækkunin væri um 0,7 til einn millimetri á ári vegna þenslunnar. Miðað við gögn þýsku vísindamannanna er hækkunin nær 1,4 millimetrum á ári. Ef báðir þættir eru lagðir saman, þensla vegna hita og bráðnun jökla, er hækkun yfirborðs um 2,74 millimetrar á ári, að því er ruv.is hefur upp úr téðum gögnum.
 

Þar segir jafnframt að niðurstöðurnar sýni að hækkunin sé misjöfn eftir svæðum. Í kringum Filippseyjar er hún fimm sinnum meiri en á heimsvísu, en við vesturströnd Bandaríkjanna, þar sem hitastig sjávar hefur lítið breyst, er hún nánast engin.