Traustari kjölfesta verðbólguvæntinga við verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands (SÍ) og hækkun krónunnar hafa gert peningstefnunefnd SÍ mögulegt að ná lögboðnum markmiðum um verðstöðugleika við lægra vaxtastig en ella.
Aðhaldsstig peningastefnunnar á komandi misserum mun ráðast af framvindu efnahagsmála og annarri hagstjórn. Gengishækkunin er talin endurspegla undirliggjandi efnahagsþróun. SÍ mun eftir sem áður grípa inn í gjaldeyrismarkaði til að draga úr sveiflum eftir því sem SÍ telur tilefni til.