Styrkur svifryks hefur farið hækkandi nú um miðjan dag 14. maí. Klukkan 16:00 var klukkustundargildi svifryks við Grensásveg 179 míkrógrömm á rúmmetra, við Njörvasund/Sæbraut 209 míkrógrömm á rúmmetra, í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum 186míkrógrömm á rúmmetra. Ástæðan er sandfok frá söndunum á Suðurlandi. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni er gert er ráð fyrir svipuðum veðurfarsaðstæðum næsta sólarhringinn og því mögulegt að styrkur svifryks verði hár áfram af sömu orsökum. Sólarhringsheilsuverndarmörkin fyrir svifryk eru 50 míkrógrömm á rúmmetra.
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur fylgist náið með loftgæðum borgarinnar og sendir frá sér viðvaranir og leiðbeiningar ef ástæða þykir til. Hægt er að fylgjast með styrk svifryks og annarra mengandi efna á loftgæði.is. Þar má sjá kort yfir mælistaði í Reykjavík og annars staðar á landinu.