Hækkanir hafa áhrif á kjaraviðræður

Drífa Snædal, forseti ASÍ, segir í samtali við Morgunblaðið að ýmsar hækkanir á gjöldum sem taki gildi nú um áramótin tali beint inn í kjarasamningsviðræður sem eru framundan.

„All­ar hækk­an­ir, breyt­ing­ar á gjald­skrám og hreyf­ing­ar hjá hinu op­in­bera sem hafa áhrif á kjör fólks tala inn í kjara­samn­inga. Nú bera all­ir ábyrgð á því að ná sett­um mark­miðum, þ.e.a.s. að þyngja ekki róður­inn held­ur létta hann fyr­ir tekju­lægstu hóp­ana. Fjár­málaráðherra hef­ur lýst því yfir að það skuli stefnt að því að hækka laun þeirra lægst launuðu. Við verðum öll að róa í sömu átt“, seg­ir Drífa.

Drífa segir að ASÍ vilji sjá frekari aðgerðir af hálfu stjórnvalda, einkum í húsnæðis- og skattamálum, og nefnir einnig að barnabætur þurfi að hækka.

Í fréttaskýringu Morgunblaðsins í dag kemur fram að meðal gjalda sem hækka um ára­mót eru áfeng­is- og tób­aks­gjöld og eldsneyt­is­gjöld. FÍB reiknar með því að bens­ín­verð hækki um 3,3 krón­ur á lítra og dísi­lol­ía um 3,1 krónu á lítra í byrjun nýs árs. Hjá Reykjavíkurborg muni gjöld hækka fyrir bókasafnsskírteini og stakar sundferðir. Leikskólagjöld, fæðisgjöld og gjöld vegna þjónustu frístundaheimila munu sömuleiðis hækka.

„Al­mennt þarf að vinda ofan af gjald­töku í vel­ferðar­kerf­inu, hvort sem það er í heil­brigðis-, mennta-, leik­skóla­mál­um eða hverju sem er. Gjald­taka í vel­ferðar­kerfi er í raun nefskatt­ur og kem­ur niður á þeim sem hafa verst­an fjár­hag“, seg­ir Drífa einnig í samtali við Morgunblaðið.